Gamlir tímar

DSC00756Ooohh ég bíð alveg eftir sumrinu, sérstaklega á morgnana þegar ég stend úti að bíða eftir strætó í snjóbyl eins og í morgun.... 

Fann þetta í gamalli saumabók frá 1949:  Prepare yourself mentally for sewing.  Think about what you are going to do..  never approach sewing with a sigh or lackadaisically.  Good results are difficult when indifference predominates.  Never try to sew with a sink full of dirty dishes or beds unmade.  When there are urgent housekeeping chores, do these first so your mind is free to enjoy your sewing... When you sew make yourself as attractive as possible.  Put on a clean dress.  Keep a little bag full of French chalk near your sewing machine to dust your fingers at intervals.  Have your hair in order, powder and lipstick put on... If you are constantly fearful that a vistior will drop in or your husband will come home and you will not look neatly put togeather, you will not enjoy your sewing as you should.   Það er nebblega það....ekkert var auðvelt þarna í gamla daga.... En ég er auðvitað með þetta allt á hreinu, set allavega alltaf á mig varalit þegar ég sest niður við saumaskapinn, það er nú lágmark finnst mér!! hohoho

Í gær kom kona til mín og sagði ,,talarðu íslensku?´´  Eftir að ég játaði því spurði hún hvort ég væri íslendingur...ég sagði auðvitað já og hún bað þvílíkt afsökunar.  Frekar fyndið.  Þetta minnti mig á tvö dæmi úr mínu lífi, það fyrra var þegar ég var c.a 8 ára og var úti á að leika mér í Furugrundinni, tvær stelpur fóru að spyrja mig hvort pabbi minn væri útlenskur.  Ég fullvissaði þær um að svo væri nú ekki en þær voru ekki alveg að kaupa það.  Eftir að hafa þulið upp að allir í minni fjölskyldu væru sko íslendingar og hananú sögðu þær ,,já en afhverju líturðu þá svona út?´´  ah börn geta verið grimm...  Seinna dæmið var á laugaveginum þegar ég var 14 ára.  Var stödd í plötubúð og afgreiðslumaðurinn var búinn að vera ótrúlega lengi í símanum (að mér fannst allavega) en ég beið bara róleg, svo allt í einu segir hann í símann  ,,heyrðu ég verð að tala við þig seinna, það er einhver túristi hérna.´´  Hann varð vægast sagt vandræðalegur þegar ég opnaði á mér munninn hehe....  En nú er komin svo mikil flóra í mannlífið hjá okkur hér á litla Íslandi og þessvegna var ég svona hissa í gær.

nóg í bili.... bíð bara eftir betra veðri eins og þið hin

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon


hahahahah brilljant:)

Það er kannski rétt það sem mamma segir? Þú ert ekki íslendingur og hefur aldrei verið:)

Ég get bætt einu dæmi við hjá þér. Einu sinni þegar ég var svona 16 ára minnir mig vorum við staddar saman í búð niðri bæ þegar afgreiðslukonan kom til að aðstoða okkur sem var bara allt í þessu fína, nema hvað, henni hefur ekki dottið það í hug að við værum báðar íslenskar því manneskjan talaði bara ensku við okkur hhahahaha sem er soldið fyndið. Og þú talaðir bara ensku við hana á móti til að móðga hana ekki á meðan ég var bara eins og sauður í framan og hugsaði: hvernig dettur manneskjunni í hug að við séum túristar:)

Já endurminningar þær geta verið skondnar

Heyri í þér. Þín litla sis 

Magnea (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband