10.3.2008 | 21:17
Betra er að ganga fram af fólki en björgum
Ég eeeelska ís, hef alltaf gert. Fékk nýja uppskrift á námskeiðinu um daginn og ætla ekkert að fara út í magnið sem ég innbyrti um helgina. En hver getur staðist svona bleikan ís?? Ekki ég allavega.
Ég er farin að ganga í vinnuna, tekur um 40 mínútur hvor leið, hef bara gott af því. Á leiðinni í dag fór ég að hugsa um veikindin mín undanfarin 10 ár. Ég hef lært ótrúlega margt um lífið og tilveruna og þó aðallega um mig sjálfa. Þetta hefur ekki alltaf verið beinn vegur. Einu sinni var mér sagt að plöntur vaxa ekki beint upp eins og allir halda. Þær vaxa upp og svo fara þær aftur aðeins niður, svo hærra upp og svo aðeins niður. Meðan þær fara niður eru þær að styrkja sig og huga að sjálfum sér. Ég held að við mannfólkið séum svona líka, alla vega á þetta vel við um mig.
Í janúrar 1997 fékk ég flensu og höfuðverk. Eftir um 3 vikur var flensan löngu farin en ég var ennþá með höfuðverk allan sólarhringinn svo ég fór til læknis. Ég bjó í englandi á þessum tíma og fékk mjög góða þjónustu. Eftir fullt af pensilíni og ýmsum styrkleikum af verkjalyfjum hófust rannsóknir. Núna 11 árum síðar hef ég misst tölu á því hversu oft ég hef farið í heilaskann, mri á heila og mænu og endalausar rannsóknir sem hafa aldrei skilað árangri. Þegar heimur lækna skilaði engu leitaði ég til náttúrulækna, miðla, grasalækna, nuddara og ég man ekki hvað, ef það er til hef ég reynt það...svo einfalt er það.
Það sem meðal annars hefur verið reynt og ekki virkað er: Sterasprautur í háls, hnakka, höfuð og kjálka, brennt fyrir taugaenda á 4 stöðum í hálsi, botox sprautur í enni, augabrúnir og kjálka, taugapróf á höfði, hálsi, öxlum og höndum, 5 vikur á geðdeild borgarspítalans, 2 vikur á geðdeild landsspítalans, 2 kírópraktorar, nudd, kínverskt nudd, sjúkraþjálfun, jóga, geðlæknar, sálfræðingar. Auk þess var ég í 3 mánuði á verkjadeild Reykjalundar, hafði reyndar mjög gott af þeirri dvöl en hausinn lagaðist ekki neitt. Sama hvað reynt hefur verið, hausinn haggast ekki. Svo auðvitað allir styrkleikar af verkjalyfjum sem virkuðu ekki í baun og í mörg ár tók ég aldrei verkjalyf. Svo einn daginn gat ég ekki meir, fékk morfín, varð háð því í nokkra mánuði(ekki gaman) og ákvað svo að hætta því og lifa verkjalyfjalaus.
Síðan í fyrra kom í ljós að ég væri með glútenofnæmi og ristilsjlúkdóm. Ég hafði reyndar verið dugleg í hollu matarræði, en borðaði spelt og spáði ekkert í því hvað væri í matnum þegar ég var í mat annarsstaðar. Svo gerðist það ótrúlega....ég fór að vakna höfuðverkjalaus. Ég man að þegar það gerðist í fyrsta sinn brá mér svo rosalega....ég lá í rúminu og þorði ekki að hreyfa mig, búin að gleyma hvernig tilfinningin væri að vera ekki með höfuðverk. Ég gat farið að hlusta á tónlist aftur og vaknaði til lífsins á svo ótrúlega margan hátt. Hver hefði trúað því að glútein hefði þessi áhrif?? Reyndar bað ég lækni um að fara í próf vegna glúteins 1998, það var tekin blóðprufa og mér sagt að ekkert hefði komið út úr henni. Núna er ég búin að komast að því að það er ekki hægt að vita þetta með blóðprufu, svo ég held að þetta hafi verið gert til að halda mér ,,góðri´´. Það er nefnilega ekki vinsælt að storma til læknis og fara fram á eitthvað sérstakt, ónei. En í gegnum árin er ég búin að koma mér upp læknum sem virkilega hlusta á mig og ég get fengið ótrúlegustu hluti í gegn. En semsagt....allt er á réttu róli núna. Svolítið skrítið að höfuðverkurinn byrjar í jan 1997 og í des 2007 fer ég að finna að hann er að minnka...semsagt akkurat 10 ár. Ég held að þetta sé eitthvað sem einhver þarna uppi vildi að ég gengi í gegnum. Ég þarf að passa mig rosalega vel og ef ég geri allt rétt er ég góð í höfðinu fram að hádegi.
En að öðru.... Máni kjáni verður 18 ára á morgun. Þar sem mamma er á Indlandi kemur það í minn hlut að baka fyrir hann. Þegar ég spurði hvað hann vildi var svarið ,,rjómatertu og pönnukökur´´ ....hmm ok... ég hef ekki bakað svona ,,óhollustu köku´´ í mörg mörg ár svo þetta er búið að vera frekar fyndið, en ég held að þetta sé að takast hjá mér. Kemur í ljós á morgun. Notaði reyndar spelt og rapadura sykur en hei.....það fattar það enginn.... Keypti svo gjöf handa honum í dag sem ég vona að hann verði ánægður með. Er svona að velta fyrir mér hvað ég eigi að hafa handa okkur um páskana.... allar hugmyndir vel þegnar. Ég get ekki boðið honum endalaust í kjúkling...??
Er aaaalveg að verða búin með annað bútateppi - þau hrannast upp hjá mér (fattiði? hrannast - hef lélegasta húmor í heimi). Nokkrir dagar eftir og þá verður það tilbúið..vúhú. Var reyndar í svo rosalega pirruðu skapi alla helgina, mig langaði bæði að drepa einhvern og leggjast í gólfið og grenja. Ef ég hefði vott af húmor fyrir sjálfri mér gæti ég hlegið að þessu. Held ég þurfi að athuga hormónana mína...macca?
Þetta er búin að vera þvílík langloka svo ég hætti á toppnum ....
kveðja frá Hrönnsu
Athugasemdir
Elsku systir það er rétt þessi síðastliðnu 10 ár hafa verið hálfgerð rússíbanaferð ef það er hægt að orða það svoleiðis.
Það tók mikið á að lesa þessa færslu og nokkur tár, en var í leiðinni gott. Ekki gott, gott þú veist. Æji þú skilur.
Ekki kjúkling segiru úpps:)
Ég var einmitt að senda þér mail með hugmyndum af páskaréttum og allir voru þeir kjúklingaréttir hahaha Enda með því eina sem ég kann að elda
Jæja mús hugsaðu vel um þig
Þín litla sis
Magnea (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 10:42
Sæta systir,
Takk fyrir falleg orð...
Það verður kjúlli á páskunum enda eina kjötið sem ég get eldað...um að gera að rústa ekki páskamatnum fyrir mannskapnum :)
knúúús á ykkur öll
Didda systir
Hrönn Magnúsar, 11.3.2008 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.