Um kannanir

DSC01333Ég er ótrúlega forvitin að eðlisfari og það háir mér nú ekkert að ráði held ég.  Ég er alveg pottþétt á einhverjum úthringilista hjá gallup eða hvað þetta heitir.  Ókei sjáið þetta fyrir ykkur.... síminn hringir...ég tek upp tólið... þýð rödd segir ,,góða kvöldið er þetta Hrönn... má ég trufla þig aðeins....´´  og ég bara geeeet ekki sagt nei, ekki afþví ég vil vera leiðinleg..nei nei..ég bara verð að vita um hvað könnunin snýst.

Um daginn hringdi kona og var mjög kurteis..þangað til ég sagði já já þú mátt alveg trufla mig... þá dembir hún á mig ,,gerirðu þér grein fyrir hvað þú ert að borga í símareikning á mánuði?´´.... uuuu..já ég veit alveg hvað ég er að borga í síma. (gera það ekki allir?)  Ég hef nú aldrei lent í svona ágengri ,,sölu´´ mannesku áður, fljótlega komst ég nefnilega að því að hún var að reyna að fá mig til að skipta um símafyrirtæki (er búin að gera það einu sinni og það er alveg nóg)....sama hvað ég reyndi að komast undan því og svara ,,ég er nú mjög ánægð þar sem ég er´´ eða ,,mig langar ekkert að skipta´´..nei nei hún var ekki að kaupa það .... þetta var orðið frekar vandræðalegt allt saman en einhvernveginn tókst mér nú samt að kveðja bara.  Svo var það bara núna fyrir nokkrum kvöldum að ég var spurð hvort ég vildi svara könnun um heimilistæki.  Tækjafríkin ég hélt það nú...loksins gæti ég svarað almennilega (ef það er pólitík þarf ég oftast að spyrja...í hvaða liði er hann aftur....ha? hver er það?..nú..uuu..hvernig lítur hún út?) Allavega..heimilistæki..ekki málið.  Svo hófst könnunin og alltaf svaraði ég.... Elko... ,,hvar kaupirðu helst raftæki?´´ uuuu...Elko....og svona hélt þetta áfram.  Mér fannst ég vera búin að svara full oft Elko og fór að reyna að breyta svörunum mínum.  Svo þegar líða fer á þetta allt saman fer hann að spyrja Elko þetta og Elko hitt.... aha..þetta var semsagt svona Elko könnun...  Loka spurningin var svo ,,var þessi könnun hæfilega löng eða mjög löng?´´  sko..könnunin var mjööööög löng og mjööööög leiðinleg en ég sagði að hún væri hæfilega löng því ég vorkenndi stráknum svo rosalega að vera í svona leiðinlegri vinnu.  (semsagt leiðinlegri vinnu að mínu mati, það er örugglega til fólk sem finnst þetta skemmtilegt.)

Áðan var svo hringt í mig og ég spurð hvort ég vildi styrkja eitthvað málefni.  Jú ekkert mál ég gerði það en.... konan talaði svo rosaleg rosalega hratt að ég hef eiginlega ekki hugmynd um hvað ég var að styrkja...sem mér finnst mjög fyndið.. það kemur bara í ljós þegar ég fæ gíróseðilinn :)  Ég heyrði allavega ,,fatlaðir´´ og ,,þetta eru einu peningarnir sem við fáum´´.... ok... gott og vel.

Ég hlakka mikið til að komast í páskafrí, setja tærnar upp í loft og hafa það gott.  Ég ætla svoooo að njóta þess skal ég segja ykkur, er ekki með neitt planað... alveg eins og það á að vera.

Knús á ykkur snúllurnar mínar

Hrönnsan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Turetta Stefanía Tuborg

Ég get nú ekki sagt ég hafi gaman af svona könnunum.

Síðasta sumar var ég að vinna frameftir flesta daga og eins og alþjóð veit er yfirleitt hringt um kvöldmatarleitið. Gallup átti greinilega eitthvað vantalað við mig því það brást varla að þegar ég kom heim tilkynnti sambýlismaðurinn að Gallup hefði verið að spyrja eftir mér.Þegar á þessu hafði gengið nokkurn tíma fórum við skötuhjú í sólarferð.Þegar heim kom eftir hálfan mánuð var síminn reyndar dauður en samt voru þar nokkur "misst calls" frá Gallup. Svo tók við sama sagan Gallup hringdi og ég var ekki heima en þar sem sambýlingur minn var orðinn hálf pirraður á þessu spurði hann hvort þessi könnun virkilega stæði eða félli með mér þau væru nú búin að hringja ansi oft. Spyrjandinn upplýsti þá að það væri búið að reyna tuttugu og fimm sinnum!Eftir þetta hefur verið friður fyrir Gallup á mínu heimili.

Turetta Stefanía Tuborg, 12.3.2008 kl. 20:51

2 Smámynd: Hrönn Magnúsar

sæl og takk fyrir að kommenta á síðuna mína

Ég er alveg viss um að það er búið að setja svona gulan undirstrikunarpenna yfir nafnið mitt hjá Gallup og skrifa ,,þessi svarar alltaf´´ :)

En snilld að spyrja hvort könnunin standi og falli með þér....góður punktur....

Hrönn Magnúsar, 13.3.2008 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband