Lífið er stutt, ég má engan tíma missa.....

DSC01573Jæja, ég er búin að búa mér til páskaegg og fylla það með yndislegum fræum, ristuðum kókosflögum, ljósum rúsínum og öðru sem mér finnst gott.  Ég setti reyndar ekki málshátt inní þar sem ég myndi skrifa hann sjálf svo ekkert spennó við það... Það reyndist örlítið flóknara í byrjun að ná tökum á þessu en nú er ég orðin rosa klár og þetta tekur enga stund.  Eggið situr í ísskápnum og bíður eftir páskum....mmm get varla beðið.  Nú á ég eftir að gera 2 egg fyrir pabba og þá mun þessi litla súkkulaðiverksmiðja loka í smá stund.  Ég ætla nú að panta kakósmjör fyrir næstu súkkulaðigerð, þá verður súkkulaðið meðfærilegra, eða réttara sagt þarf ekki að geyma það í ísskápnum eða frystinum (hefði sem sagt verið snilld í páskaegggin) og bragðið verður örlítið mildara.  Semsagt verður það næst, þarf að panta það frá Englandi.

Páskaliljurnar eru farnar að stingast upp úr moldinni í garðinum mínum, heyrst hefur í lóum í Grafarvoginum, geitungar eru að vakna úr dvala og farfuglarnir farnir að sjást.... semsagt vorið er á næsta leiti...looooksins.  Já þetta er allt að koma hjá okkur hér á Fróni.  Afi er nú reyndar á því að þessi eina lóa sem heyrðist í hafi bara orðið eftir í fyrra, en ég hlusta nú ekki á svona rökfærslu :)  Ekkert skal brjóta vorfílínginn minn ....

Ég er alveg að verða búin með nýja bútateppið, saumaði helling í dag og þetta er alveg að koma... myndir koma bráðlega.

Kvöldmaturinn var súpa með bókhveiti...mmm..  Ég var að uppgötva að í staðinn fyrir að setja pasta í súpur (munið glúten ofnæmi hér á bæ) er rosalega gott að setja bókhveiti (heilt) út í.  Allar aðrar hugmyndir eru vel þegnar.

Um daginn fór ég upp í frú fiðrildi á laugaveginum en kom að tómum kofanum... það er semsagt búið að loka henni.. því miður.  Ég ætlaði að kaupa þar dyrahnappa (eða húna eða hvað þetta heitir nú).  Ótrúlega flottir sem voru til þar... nú þarf ég annaðhvort að hafa upp á eigendunum (nýbúin að henda nafnspjaldinu þeirra...hvað er þetta með mig og að henda hlutum rétt áður en ég þarf að nota þá?) eða finna aðra búð sem selur svona gamla flotta húna.  Vantar á skápinn sem ég ætla að gera upp.  Mig rámar eitthvað í að mamma þekki einhvern sem er frændi eða frænka eigenda frú fiðrildis....ok soldið langsótt en þegar mamma kemur frá Indlandi hlýtur hún að geta grafið eitthvað upp....ef ég verð ekki búin að því sjálf það er að segja.

Ég er búin að vera að lesa ,,Gluten free girl´´ bókina í dag og hún er æði!!  Ef þið hafið gaman af mat yfir höfuð er þetta bók fyrir ykkur.  Hún talar jú helling um glúten en líka bara það að hafa gaman af matargerð yfir höfuð.  Það er ekkert rosalega mikið af uppskriftum og þær sem eru henta mér ekkert rosalega, aðallega vegna þess að þau mjöl sem hún notar eru ekki til hér auk þess sem hún notar soldið mikið sykur.  Spurning um að gera bara tilraunir..... ekki slæm hugmynd.

Heil vika fram undan af óvæntum atburðum.... stór dagur hjá mér á morgun (fer ekkert nánar út í það) og er svo að fara á einhverja aloe vera kynningu annað kvöld í Hlíðarsmára.  Það verður örugglega gaman bara.  Ég var að skoða heimasíðuna þeirra og þar er margt interessant að finna, kemur allt í ljós kemur allt í ljós...

Knúsið og kyssið hvort annað í kvöld elskurnar mínar og eigið góða viku...

kveðja frá Hrönnsu pönnsu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband