Hamingja

DSC01606Það er þvílík gleði hér á bæ í dag.  Ég bakaði fullkomnar glútenlausar múffur!!  Þær eru mjúkar, loftkenndar og bragðgóðar.  Er í skýjunum skal ég segja ykkur.  Þetta er úr bók sem ég keypti um daginn og ég mun örugglega vera bakandi næstu vikur..hehe ekki slæmt.  Ég nota reyndar agave sýróp í staðinn fyrir sykurinn og set ekki glassúr ofaná. mmmm.  Og svo auðvitað verða allar kökur betri þegar þær eru geymdar í svona glerhjálmi, það er yndisleg tilfinning að lyfta hjálmnum af og næla sér í smá góðgæti.  Vegna þess að ég gat ekki hamið þessa gleði mína að þá saumaði ég dúkinn sem er undir standinum sjálfum í kjölfarið (bara ræð ekki við mig). Blúndan er frá langömmu minni og það er svo ljúft að taka í sundur blúndu sem hún hefur rúllað varlega og fallega upp til að geyma. 

Ég er að sauma ´penna´veski fyrir tréliti.  Það eru 24 trélitir og hver litur hefur sitt efni í lit sem passar.  Ég ætlaði upphaflega að gera tvö en hver er munurinn að gera 2 eða 6??   Ekki mikill svo ég er semsagt að gera 6 stykki.  Klára vonandi fljótlega svo ég geti sett myndir inn, þá fattið þið hvað ég er að meina.  (annars gæti ég örugglega gert 50 stykki og það sæi lítið á efnunum hjá mér).

Ég hefði sennilega ekki átt að vera að minnast á sumrin og það allt í gær því þegar ég leit út um gluggann í gærkvöldi var farið að snjóa...snjóa!!  Ég tók strætó í vinnuna í morgun en svo er þetta nú að verða búið núna.  Ég umvef mig bara blómum á meðan..já og kökum.

Ég ætla að næla mér í aðra múffu og fara svo að elda

knús á ykkur

Hrönnsan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvamlega hver sér mun á 1-2 eða 50 !!! Enginn hehehe Elsku Didda mín þetta ert bara þú í hnotskurn hahahahaha

Endilega geymdu eina svona köku handa mér:))

Þín sis 

Magnea (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 10:01

2 Smámynd: Hrönn Magnúsar

Já ég veit, eftir að hafa saumað þennan sæta dúk saumaði ég 6 í viðbót (mismunandi stærðir og efni) en.... hvað á ég að gera við þá?? 

knús á þig músin mín

H

Hrönn Magnúsar, 12.4.2008 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband