2.11.2009 | 17:56
ný peysa
jæja þá er fyrsta peysan sem ég hanna sjálf og prjóna tilbúin. Þetta er búinn að vera mjög svo lærdómsríkur prósess en allt lukkaðist í lokin. Ég prjónaði 6 metra af blúndu sem ég svo saumaði á. Peysan er þæfð í þvottavél og er því prjónuð mjög stór. Hún passar akkurat á mig nema ermarnar eru 3 cm of langar vegna þess að ég reiknaði þær vitlaust út.
Að sjálfsögðu er hún vel bleik, bjóst einhver við öðru :)
Ég kláraði ritgerðina sama morgun og átti að skila henni, ekkert rosalega sniðugt en ég er bara manneskja sem gerir allt undir pressu.
Er annars að drukkna í verkefnum en þetta er svo gaman að það skiptir engu. Núna erum við búin í vélprjóni í bili og komin í handprjón og hekl. Við erum að gera svokallað freeform prjón sem mér líst mjög vel á og eitthvað skemmtilegt á eftir að koma út úr því.
Athugasemdir
Flott peysan thin og gott ad thu ert ad hafa svona gaman ad thessu!
Johanna (IP-tala skráð) 3.11.2009 kl. 20:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.